Námskeið

Þú getur bæði komið með hópinn þinn í höfuðstöðvar FESTEN að XXXXX XX þar sem er allt til alls fyrir skemmtilegt námskeið eða fengið FESTEN heim til þín þar sem við sláum upp veislu í þínu húsnæði með mat, tónlist og drykk

Lærðu að halda hið fullkomna matarboð

-stemning, matur, drykkir og skreytingar

Hér færðu leiðbeiningar um allt sem snýr að hinu fullkomna matarboði frá A til Ö. Þetta er góð kvöldstund með mat og freyðivíni fyrir þig og hópinn þinn.

Meðal annars:

  • Undirbúningur á stemningu kvöldsins
  • Undirbúningur á mat svo eftirleikurinn sé auðveldur
  • Skreytingar og huggulegheit
  • Smáréttirnir sem taka á móti gestum og koma stemningunni af stað
  • Hvað þarftu að eiga og hafa klárt
  • Spennandi drykkir
  • Stemning í tónlist

Smörrebröd alla leið

-með gestakokki frá Danmörku

Mummi bjó í Danmörku í fjögur ár og kann allt sem tengist þessum þjóðarrétti Dana. Og ekki nóg með það, heldur fær hann gestakokk með sér frá Danmörku til að lyfta stemningunni upp á ósvikið danskt plan! Hér lærirðu ekki bara að gera hefðbundið smurbrauð heldur líka aðrar léttar veitingar og smárétti í smurbrauðsstíl upp á danska mátann.

Ítalía alla leið

-með gestakokki frá Ítalíu

Hver elskar ekki ítalskan mat? Hér förum við yfir pizzur, pasta og allt hitt ásamt hinum ítalska Domenico sem Mummi hefur unnið með um nokkurra ára skeið. Molto bene!

Egyptaland alla leið

-með gestakokki frá Egyptalandi

Tónlist, stemning og framandi matargerð! Hér fara Mummi og egypski gestakokkurinn Mohamed með ykkur í bragðferðalag til Egyptalands sem lætur engan ósnortinn.

Tyrkland alla leið

-með gestakokki frá Tyrklandi

Kryddin sem allir kannast við en færri kunna að nota. Mummi kynnir ykkur fyrir Murat vini sínum frá Tyrklandi og saman leiða þeir ykkur í allan sannleik um kryddin, matarmenninguna og uppskriftirnar.