HVAÐ ER  FESTEN?

FESTEN er hugarfóstur Mumma, Guðmundar Annas Árnasonar sem hefur áratugareynslu að baki sem kokkur og tónlistarmaður bæði hér heima og erlendis og Hildar Sumarliðadóttur sem er lærður fatahönnuður og hárgreiðslukona Mummi er ekki síður þekktur sem stemningsmaður sem tryggir að allt sé á sínum stað til að fólkið í kringum hann geti notið lífsins til fullnustu.

FESTEN er matar- og listarými þar sem Mummi getur galdrað fram mat í veisluna þína eða tekið á móti þér og hópnum þínum í skemmtilega stemningu þar sem þið lærið eitthvað nýtt hjá Mumma og hans fólki. Markmiðið er að þú upplifir, njótir og farir heim reynslunni ríkari.

FESTEN er jafnframt veisluþjónusta sem þú getur pantað allt sem þú þarft fyrir viðburðinn þinn – veitingar, tónlist, skreytingar & borðbúnað 

FESTEN snýst um að þú upplifir, njótir og lærir eitthvað nýtt. FESTEN lyftir hversdagslífinu upp á æðra plan með því að skapa stemningu með hlutunum í kringum okkur. Hönnun, húsgögn, föt, matur, tónlist – allt skiptir þetta máli til að veislan verði sem eftirminnilegust . FESTEN er stemning í pakka sem hentar þínu tilefni.